Yfirleitt liggja allar flugsamgöngur til og frá landinu niðri á jóladag, en í ár verður Flugstöð Leifs Eiríkssonar opin á jóladag.
Þar mun ein vél koma við, hún er á vegum breska flugfélagsins easyJet og kemur frá Genf í Sviss. Vélin mun lenda í Keflavík um kl. 16 og fara aftur um kl. 17.
Þetta kemur fram á vefsíðunni Túristi.is. Þar segir að vegna þessa þurfi að ræsa út starfsfólk flugvallarins og að sögn Isavia sé ætlast til þess að verslanir séu opnar við allar brottfarir.