Ríflega hálfa klukkustund tók að flytja hræ einnar tylftar hrossa með þyrlu úr gaddfreðinni Bessastaðatjörn í morgun. Talsverður undirbúningur hafði þó farið fram fyrir flutningana fyrr í morgun, en kafarar og þyrla frá fyrirtækinu Reykjavík Helicopter komu að aðgerðinni. Hræjunum var komið fyrir á vöruflutningabíl og þau flutt á urðunarstöðina í Álfsnesi.
Hrossin fundust undir ísnum í gærmorgun, en þeirra hafði þá verið leitað um nokkurn tíma. Þyrla Landhelgisgæslunnar var á leið í reglubundið eftirlits- og gæsluflug í gær þegar áhafnarmeðlimir heyrðu af leitinni og var því ákveðið að fljúga yfir svæðið. Áhöfn þyrlunnar kom fljótt auga á hrossinn í Bessastaðatjörn og tilkynnti það til stjórnstöðvar sem gerði lögreglu viðvart. Sjö hestanna voru í eigu Íshesta, en fimm í eigu félaga í Hestamannafélaginu Sóta.
Fréttir mbl.is:
Hestarnir allir komnir á þurrt
„Viljum bara koma greyjunum undir mold“
Tólf hestar undir ísnum í Bessastaðatjörn