SUS fordæmir ummæli Ásmundar

Ásmundur Friðriksson.
Ásmundur Friðriksson. mbl.is/Árni Sæberg

Sam­band ungra sjálf­stæðismanna, SUS, hvet­ur Ásmund Friðriks­son, þing­mann Sjálf­stæðis­flokks­ins, til að biðja ís­lenska múslima af­sök­un­ar á þeim um­mæl­um sín­um um að það beri að kanna bak­grunn þeirra múslima sem búa hér á landi. Þá eru um­mæl­in for­dæmd.

„Hef­ur bak­grunn­ur þeirra 1500 múslima sem búa á Íslandi verið kannaður og hvort ein­hverj­ir „ís­lensk­ir múslim­ar“ hafi farið í þjálf­un­ar­búðir hryðju­verka­manna eða bar­ist í Af­gan­ist­an, Sýr­land eða öðrum lönd­um þar sem óöld rík­ir meðal múslima. Mér hef­ur ekki áður dottið í hug að spyrja slíkra spurn­inga því ég trúi alltaf á það góða í öllu fólki en það á ekki leng­ur við þegar ör­yggi þjóðar­inn­ar er und­ir,“ seg­ir Ásmund­ur á sam­fé­lagsvefn­um Face­book.

Ung­ir sjálf­stæðis­menn segja mik­il­vægt að leiðtog­ar heims­ins gefi ekki eft­ir í bar­átt­unni gegn hryðju­verka­hóp­um eins og Íslamska rík­inu, en reyni jafn­framt á sama tíma að sporna við því að minni­hluta­hóp­ar sæti of­sókn­um vegna trú­ar­skoðana sinna. „Það er því virki­lega óviðeig­andi og til um­hugs­un­ar að maður sem á sæti á æðstu stofn­un Íslend­inga láti um­mæli sem þessi falla. Sjálf­sögð borg­ara­rétt­indi minni­hluta­hópa falla ekki niður vegna hryðju­verka­árása of­stæk­is­manna.

Um­mæli Ásmund­ar eru aðeins til þess fall­in að stuðla að fé­lags­legri ein­angr­un múslima á Íslandi. Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn hef­ur verið mik­il­vægt afl í mann­rétt­inda­mál­um hér á landi.

Um­mæli í þess­um dúr eru í engu sam­ræmi við grunn­gildi flokks­ins um ein­stak­lings­frelsi og borg­ara­rétt­indi.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert