Lögregla höfuðborgarsvæðisins hefur lokið rannsókn á mannsláti í Stelkshólum í lok september og sent málið til ríkissaksóknara sem tekur ákvörðun um útgáfu ákæru, hvort málið verði fellt niður eða sent lögreglu að nýju til frekari rannsóknar. Lokaniðurstöðu krufningar er hins vegar enn beðið.
Aðfaranótt 28. september sl. fékk lögregla tilkynningu um að 26 ára kona væri látin á heimili sínu í Stelkshólum í Breiðholti. Eiginmaður konunnar, sem er 29 ára gamall, var handtekinn á vettvangi en strax vaknaði grunur um að andlát konunnar hefði borið að með saknæmum hætti.
Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald en því var fljótlega breytt í öryggisgæslu á réttargeðdeild Landspítalans á Kleppi þar sem honum er enn haldið. Hann hafði fyrir atburðinn glímt við andleg veikindi. Hann er grunaður um að hafa þrengt að öndunarvegi konu sinnar þannig að bani hlaust af.