„No comment að svo stöddu“

Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti Framsóknar og flugvallarvina í borgarstjórn Reykjavíkur.
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti Framsóknar og flugvallarvina í borgarstjórn Reykjavíkur.

Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti Framsóknar og flugvallarvina í borgarstjórn Reykjavíkur, vildi ekki tjá sig um að Gústaf Níelsson hafi verið kjörinn varamaður í mannréttindaráð Reykjavíkur fyrir hönd Framsóknar og flugvallarvina.

„No comment að svo stöddu,“ sagði Sveinbjörg þegar blaðamaður hringdi í hana, en sagði tilkynningar að vænta innan hálftíma.

Ekki náðist í Guðfinnu J. Guðmundsdóttur, sem skipar annað sæti lista Framsóknar og flugvallarvina.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert