„Það er ljóst að það yrði ekki vinnufriður um þau góðu og mikilvægu málefni sem við höfum verið að vinna að í borgarstjórn og við vissum ekki af afstöðu [Gústafs] til samkynhneigðra. Það er það sem breyttist,“ segir Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti Framsóknar og flugvallarvina í Reykjavíkur, spurð að því hvað olli því að borgarfulltrúar Framsóknar og flugvallarvina ákváðu að draga skipun Gústafs Níelssonar sem varamanns í mannréttindaráð Reykjavíkurborgar til baka.
Sveinbjörg segir að í kjölfar skipunar Gústafs hafi ákveðnir hlutir verið dregnir fram sem borgarfulltrúunum var ókunnugt um. „Þeir eru uppi á borðinu núna og þá þurfum við að endurskoða okkar afstöðu, og við erum alveg konur til þess að gera það,“ segir hún.
Í tilkynningu frá Framsókn og flugvallarvinum um afturköllun skipunar Gústafs segir m.a. að stefna framboðsins sé skýr.
„Við berjumst fyrir mannréttindum, virðingu fyrir einstaklingnum og fjölskyldunni. Við höfnum hvers konar mismunun sem gerir greinarmun á fólki t.d. eftir kynþætti, kynferði, tungu, trú, þjóðerni, kynhneigð, búsetu eða stjórnmálaskoðunum. Við munum ávallt verja skoðana- og tjáningarfrelsi, trúfrelsi og friðhelgi einkalífs.
Skipun varamanns í mannréttindaráð Reykjavíkurborgar í gær er ekki í samræmi við stefnu Framsóknarflokksins og voru því mistök af okkar hálfu,“ segir í tilkynningunni.
Greta Björg Egilsdóttir tekur sæti varamanns í mannréttindaráði Reykjavíkurborgar.
Uppfært kl. 12.44:
Á Facebook-síðu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra má nú finna eftirfarandi færslu:
„Hitti fulltrúa Framsóknar og flugvallarvina í morgun til að ræða flugvallarmál. Ræddum einnig þau mistök sem voru gerð við nefndarskipan. Fundurinn var góður og árangursríkur.“