Samkvæmt nýrri þjónustukönnun Capacent er Garðabær í fyrsta sæti sveitarfélaga hér á landi hvað varðar þjónustu við barnafjölskyldur.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í umfjöllun í greinaflokknum Heimsókn á höfuðborgarsvæðið í dag.
Sagt er frá rekstri tveggja ungbarnaleikskóla, í bænum. Einnig er rætt við bæjarlistamanninn Soffíu Sæmundsdóttur myndlistarkonu og sagt frá starfsemi Hönnunarsafnsins.