Bæjarlistamenn Kópavogs héldu námskeið í rappi fyrir nemendur í 10. bekk grunnskólans í bænum. Þetta eru stöllurnar í hljómsveitinni Tazmaníu.
Rætt er við eina þeirra, Þuríði Blæ Jóhannsdóttur, í umfjöllun dagsins um bæjarfélagið í greinaflokknum Heimsókn á höfuðborgarsvæðið.
Að auki er sagt frá byggingarframkvæmdum í hinu nýja Glaðheimahverfi, rætt við blómasala við Nýbýlaveg og forvitnast um stöðuna í verslunarmiðstöðinni Smáralind.