Stefnir Fjarskiptum vegna hakkara

Sá sem stefnir Fjarskiptum hf. telur sig hafa orðið fyrir …
Sá sem stefnir Fjarskiptum hf. telur sig hafa orðið fyrir tjóni vegna hakkara. mbl.is/Stymir Kári

Fjarskiptum hf. hefur borist stefna þar sem gerð er krafa um bætur vegna tjóns sem einstaklingur telur sig hafa orðið fyrir vegna innbrotsþjófnaðar erlends tölvuhakkara á heimasíðu Vodafone í nóvember 2013 og í kjölfarið dreifingu þjófsins og annarra á hinum stolnu gögnum. Gerð er krafa um skaða- og miskabætur að fjárhæð kr. 8.424.500., auk vaxta og málskostnaðar. 

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Fjarskiptum hf. 

„Fjarskipti hf. mun á næstunni kynna sér rökstuðning fyrir stefnunni og taka afstöðu til hennar fyrir dómi. Í ljósi málavaxta telja Fjarskipti hf. þó verulegan vafa leika á hvort skilyrði bótaskyldu séu fyrir hendi. Fjarskipti hf. álítur jafnframt, telji dómstólar félagið yfirleitt bótaskylt, líklegt að dæmdar fjárhæðir í þessu eða öðrum hliðstæðum málum, sem boðuð hafa verið, hafi í öllu falli óveruleg áhrif á rekstur og efnahag félagsins.

Við þetta mat er hliðsjón höfð af óvissu um bótaskyldu sem og dómafordæmum um ákvörðun fjárhæðar miskabóta, umfangi rekstrarins auk þess sem krafan kann að falla undir tryggingaskilmála félagsins. Gerð verður grein fyrir þessari og mögulegum frekari málshöfðunum í skýringum ársfjórðungsuppgjöra eða eftir því sem við getur átt,“ segir í tilkynningu. 

Hakkari birtir persónuupplýsingar

Lykilorðum og notendanöfnum lekið

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert