Fimm bíla árekstur í Vatnsskarði

Mjög blint er í Vatnsskarðinu.
Mjög blint er í Vatnsskarðinu. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Fimm bíla árekstur varð í Vatnsskarði um þrjúleytið í dag. Fyrst rákust tveir bílar saman en hinir þrír skullu á bílana um tuttugu mínútum síðar. Að sögn lögreglu á Sauðárkróki var afar blint á veginum þegar slysið varð.

Árekstrarnir voru harðir og er einn bílanna ónýtur. Tveir voru fluttir á heilsugæslu en talið er að meiðsl þeirra séu líklega minniháttar.

Enn er mjög blint í Vatnsskarðinu og því var ákveðið að loka því. Lögregla varar fólk við að vera á ferðinni á svæðinu en þar er varla sætt fyrir roki.

Vegurinn um Öxnadalsheiði er lokaður ásamt Siglufjarðarvegi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert