Tveir fólksbílar lentu í hörðum árekstri á gatnamótum Þúsaldar og Reynisvatnsvegar fyrir stundu. Fimm voru fluttir á Landspítala til aðhlynningar. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendi dælubíl á vettvang til að hreinsa upp olíu. Aðrar upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu.