Dúi Landmark formaður Skotvís

Dúi J. Landmark og Elvar Árni Lund.
Dúi J. Landmark og Elvar Árni Lund. mbl.is

Dúi J. Landmark var á aðalfundi Skotveiðifélags Íslands (Skotvís) í gær kjörinn nýr formaður félagsins. Elvar Árni Lund, fyrrverandi formaður, gaf ekki kost á sér til endurkjörs eftir 7 ára stjórnarsetu, þar af 4 sem formaður. Í nýrri stjórn sitja nú auk Dúa, Indriði R. Grétarsson sem kjörinn var í embætti varaformanns, Kristinn Gísli Guðmundsson, Stefán Þórarinsson, Aðalbjörn Sigurðsson, Friðrik Sigurður Einarsson og Borgar Antonsson.

Nýrrar stjórnar bíða fjölmörg verkefni, segir í fréttatilkynningu, meðal annars að halda áfram uppbyggingu á innviðum félagsins sem fráfarandi stjórn vann að síðustu ár. Má þar nefna stofnun svæðisráða á landsvísu, ásamt því að vinna áfram að hagsmunamálum skotveiðimanna í samvinnu við stjórnvöld og önnur útivistar- og náttúruverndarsamtök. Einnig að vinna áfram að upplýsingagjöf til skotveiðimanna og almennings.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert