Grafarvogsbúar eru með hugmyndir um verkefni í hverfinu sem kosta um 117 milljónir króna. Meðal annars vilja þeir hundagerði í Gufunesi.
Rafræn íbúakosning um tillögurnar úr hverfinu og öðrum borgarhlutum hefst í dag.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í umfjöllun um Grafarvogshverfi í greinaflokknum Heimsókn á höfuðborgarsvæðið í blaðinu í dag. Fram kemur í umfjöllun um hverfið að byggð muni aukast þar verulega á næstu árum.