Ríkisstjórnin opin fyrir tillögum

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra í ræðustól Alþingis.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra í ræðustól Alþingis. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sagði á Alþingi í gær um stöðu kjaraviðræðnanna að ríkisstjórnin væri sem fyrr opin fyrir tillögum frá aðilum vinnumarkaðarins um það hvað hún gæti lagt af mörkum vegna komandi kjarasamninga.

„Þar skiptir augljóslega miklu máli hvernig ríkið hagar gjaldtöku, skattlagningu og þar fram eftir götunum og þar höfum við svo sannarlega verið til í að stilla saman strengi við aðila vinnumarkaðarins.

En húsnæðismál hafa líka verið nefnd sérstaklega og ekki er ólíklegt að húsnæðismálin blandist eitthvað inn í þær viðræður sem í hönd fara. Þar hefur mikil undirbúningsvinna átt sér stað af hálfu stjórnvalda, eins og háttvirtur þingmaður þekkir, og vonandi má hún verða til að liðka fyrir samningum og bæta um leið stöðu bæði leigjenda og þeirra sem vilja fjárfesta í húsnæði,“ sagði hann.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert