Hópferðabíll frá fyrirtækinu Iceland Excursions Allrahanda - Gray Line fór út af veginum í Þrengslum í kvöld og er unnið að því að koma honum aftur upp á veg. Fjöldi farþega var um borð í rútunni og þurfti að sækja þá til að hægt væri að halda ferðinni áfram. Engan sakaði í óhappinu en talið er að rútan hafi hreinlega fokið út af veginum.
Engar upplýsingar fengust um málið frá Grayline og kvaðst vaktmaður ekki hafa tíma til að sinna fjölmiðlum.