Með verstu spám sem sést hafa

Spáin fyrir morgundaginn er með þeim verstu sem sést hafa …
Spáin fyrir morgundaginn er með þeim verstu sem sést hafa fyrir landið í vetur. mbl.is/Rax

Spáin fyrir morgundaginn er með verstu spám sem landsmenn hafa séð í vetur og búast má við að allt fari á flot þegar enn ein lægðin fer yfir landið.

Búist er við stormi eða ofsaveðri víða um land. Þetta segir Birta Líf Kristinsdóttir, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands um veðrið á landinu á morgun.

Ekki skal þó vanmeta lægðina sem dynur á landinu í dag, þó hún falli vissulega í skuggann af þeirri sem býr sig undir að valda usla á morgun. Lesendur mbl.is eru hvattir til að fylgjast vel með veðurspám í dag og um helgina.

Hægt er að fylgjast með veðurspánni á veðurvef mbl.is

Allt getur farið á flot

„Það er búist við stormi eða ofsaveðri víða um land á morgun, sérstaklega norðan- og vestanlands en þar er búist við að meðalvindur fari upp í 30 m/sek og hviður verði talsvert meiri,“ segir Birta Líf í samtali við mbl.is.

Þessu fylgir þónokkuð vatnsveður og ættu þeir sem verða á ferðinni sunnanlands að gera ráð fyrir vatnavöxtum í ám. Þá ætti fólk einnig að huga að niðurföllum en Birta Líf bendir á að allt geti farið á flot í veðri sem þessu.

Með verstu spám sem sést hafa í vetur 

„Þetta er með verstu spám sem við höfum séð í vetur. Núna er úrkoman rigning á láglendi og því eru aðrar hættur og annað sem þarf að huga að. Það má alveg búast við því að það fari allt á flot. Sérstaklega á höfuðborgarsvæðinu, það er alveg hásunnanátt og við erum ekki með skjól af fjöllum,“ segir Birta Líf.

Gert er ráð fyrir um 20 – 30 m/sek meðalvindhraða á höfuðborgarsvæðinu á morgun. „Þetta er með því versta sem við höfum spáð á höfuðborgarsvæðinu. Það er viðbúið að þakplötur fjúki og annað sem ekki er fast,“ segir Birta Líf.

Lægð dagsins fellur í skuggann

Lægðin og veðrið sem fylgir henni fellur vissulega í skuggann af lægð morgundagsins. „Stormurinn í dag verður engu síður mjög öflugur og ber að taka hann alvarlega. Sunnan- og vestanlands verða 18 – 25 m/sek og í kvöld verður stormur austanlands,“ segir Birta Líf.

„Dagurinn á morgun verður verri en það þýðir ekki að dagurinn í dag sé ekki slæmur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert