Húsbíll valt á hliðina í óveðrinu

Húsbíll valt á hliðina í rokinu í gær, en bíllinn stóð við Árskóga í Breiðholti. Nokkrum klukkustundum síðar barst bifreiðinni aðstoð og var henni snarað aftur á réttan kjöl. 

Óveðrið í gær olli töluverðum skaða. Í Bíldudal horfði kona á eftir bifreið sinni niður brekku þar sem hún endaði á hvolfi með hjólin upp í loft. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert