Skipuleggendur mótmælanna á Austurvelli létu taka þetta myndband úr dróna, sem sýnir mótmælin frá áhugaverðu sjónarhorni. Talið er að um 7.000 manns hafi lagt leið sína á Austurvöll í dag til þess að mótmæla ákvörðun ríkisstjórnarinnar að slíta endanlega aðildarviðræðum við Evrópusambandið.
Sem kunnugt er afhenti Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra fulltrúum sambandsins bréf á fimmtudaginn þar sem segir að ríkisstjórnin hafi samþykkt að hún hyggist ekki taka upp aðildarviðræður við ESB á ný.
Hér má sjá myndbandið:
Sjá frétt mbl.is: Um sjö þúsund manns á Austurvelli