Alfreð Örn Clausen er eftirlýstur flóttamaður og er verið að skoða möguleika á því að hann verði handtekinn og framseldur til Bandaríkjanna. Þetta kemur fram í skriflegu svari Maurice Landrum, yfirrannsóknarmanns við lögregluembættið í San Bernardino í Kaliforníu í Bandaríkjunum, við fyrirspurn mbl.is.
Kemur jafnframt fram í svari Landrum að Alfreð hafi verið ákærður ásamt tveimur samstarfsmönnum hans sem eru nú í varðhaldi.
Eins og fram hefur komið á mbl.is er Alfreð talinn hafa ásamt tveimur öðrum svikið meira en 44 milljónir dollara, rúma sex milljarða króna, út úr hópi fólks með loforðum um að breyta lánum þess.
Í yfirlýsingu frá lögmanni Alfreðs, Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni, lýsir Alfreð sig saklausan í málinu. Hann lítur svo á að hann sé hugsanlega vitni í málinu en ekki sakborningur. Kemur jafnframt fram að Alfreð sé reiðubúinn að aðstoða embættið með hverjum þeim hætti sem þurfa þykir til þess að upplýsa málið. Er Alfreð jafnframt tilbúinn til þess að gefa skýrslu hjá Ríkislögreglustjóra ef þurfa þykir.
Samkvæmt upplýsingum frá innanríkisráðuneytinu hefur ekki verið haft samband við ráðuneytið varðandi framsal á Alfreð.
Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu er í gildi er tvíhliða framsalssamningur milli Íslands og Bandaríkjanna frá árinu 1902, auk viðbótarsamnings frá 1905. Þess má þó geta að í 2. gr. laga nr. 13/1984 um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum er lagt bann við því að framselja íslenska ríkisborgara. Íslenskir ríkisborgarar hafa þó verið afhentir til Danmerkur á grundvelli laga nr. 12/2010, um handtöku og afhendingu manna milli Norðurlandanna vegna refsiverðra verknaða (norræn handtökuskipun), en þau lög tóku gildi 16. október 2012.