Tónlistarkonan Dísa Jakobsdóttir er með mörg járn í eldinum þessa dagana en hún lýkur bæði lagasmíðanámi og nuddnámi í vor. Auk þess gefur hún frá sér sólóplötu í vor sem er einmitt einnig útskriftarverkefni hennar úr skólanum, Rytmisk Musikkonservatorium. „Útskriftarverkefnið mitt er í raun næsta sólóplata mín en hún kemur út á eftir EP-plötu eða smáskífu sem kemur út 24. mars. Sú heitir Sculpture og inniheldur fimm lög. Hún er fremur óhefðbundin því hún kemur út á netinu en ekki í föstu formi, ef svo má að orði komast. Maður er svona að reyna að vera í takt við tæknina og vera með puttann á púlsinum,“ segir hún og hlær. „Nei, ég segi svona.“
Áhuga sinn á nuddnáminu og hvers kyns lækningum segir hún hafa verið til staðar lengi, en það var bernskudraumur hennar að verða læknir. Hún segir að það sé orðið nokkuð ljóst að hún eigi erfitt með að slíta sig frá tónlistinni enda sé tónlistin orðin stór hluti af því hver hún er. Hins vegar geti hún samtvinnað þetta tvennt.
„Það var alltaf draumur minn sem barn að verða læknir. Ég held ég fylgi þessum gamla draumi mínum hægt og rólega en fari þó ekki í hefðbundið nám,“ segir Dísa. „Ég dreif mig í þetta nám til þess að geta byggt ofan á það. Það eru svo margir möguleikar í þessum geira og hægt að bæta við allskonar námskeiðum og hvaðeina. Það er þægilegt að geta byggt þetta upp eins og legókubba.“
Dísa á tvo drengi með danska tónlistarmanninum Mads Mouritz, þá Magnús og Jóhannes. Fyrir um ári ákváðu Mads og Dísa að slíta sambandinu en bjuggu þó saman í einhvern tíma þar sem að yngri sonurinn var svo lítill. „Þetta er allt saman gert í góðu og hentar bara vel. Við erum góðir vinir og það er það sem við leggjum allra mestu áherslu á, að vera góðir vinir. En ég meina, skilnaðir eru alltaf erfiðir og þetta hefur ekki beinlínis verið dans á rósum,“ segir hún einlæg. Það heyrist vel á rödd Dísu að hún tekur þessum breytingum af æðruleysi og hefur jákvæðnina að vopni. „Við vorum búin að vera saman í fimm ár. Og tókum þetta bara á túrbó-hraða. Spiluðum saman, eignuðumst tvö börn saman á stuttum tíma og kannski hefur það bitnað á öllu, ég veit það ekki.“
Dísa upplifði sjálf skilnað hjá foreldrum sínum þegar hún var tólf ára. Hún segir það ekki hafa haft mikil áhrif á sig því foreldrar hennar leystu málin vel. „Þau gerðu þetta svo vel. Þau voru áfram í hljómsveit og hafa alltaf haft gott samband á milli. Þau eru góðir vinir og það munar öllu fyrir börnin í svona ferli,“ segir Dísa.
Viðtalið við Dísu Jakobsdóttur má finna í heild sinni í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins sem fæst í öllum helstu verslunum landsins.