Annar drengjanna sem fluttir voru á slysadeild í dag eftir alvarlegt slys í Hafnarfirði er kominn til meðvitundar og er vakandi samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum. Hinum drengnum er haldið sofandi í öndunarvél.
Karlmaður á þrítugsaldri, sem reyndi að koma þeim til bjargar, var einnig fluttur á spítalann en líðan hans er ekki sögð alvarleg.
Tilkynning um slysið barst rétt eftir klukkan hálfþrjú í dag og voru þá tveir drengir í vandræðum í læknum í Hafnarfirði. Þriðji strákurinn, sem var eldri en hinir tveir, fór út í lækinn til að koma þeim til aðstoðar. Mikill viðbúnaður var á vettvangi, meðal annars fjöldi sjúkrabíla, kafarabíll og dælubíll.
Frétt mbl.is: Alvarlegt slys í Hafnarfriði
Frétt mbl.is: Óvíst um afdrif annars drengsins