Fordómarnir hurfu nánast á 20 árum

Anna Kristjánsdóttir í Gleðigöngunni árið 2013.
Anna Kristjánsdóttir í Gleðigöngunni árið 2013. mbl.is/Ómar

Í dag eru tuttugu ár liðin frá því að Anna K. Kristjánsdóttir, vélstjóri, gekkst undir kynleiðréttingaraðgerð í Svíþjóð. Hún segir viðhorf Íslendinga til transfólks hafa breyst geysilega mikið frá því að hún fór í aðgerðina árið 1995.

Anna starfar hjá Orkuveitu Reykjavíkur og fer af og til í afleysingatúra á flutningaskipum þar sem hún er yfirleitt eina konan um borð.

„Þetta var ekki sjálfsagður hlutur á sínum tíma. Þegar þáverandi biskup frétti af því að ég hefði farið í mína aðgerð þá bað hann drottinn um að bjarga mér,“ segir hún en það var tveimur árum seinna sem fyrsta kynskiptiaðgerðin hérlendis var gerð, árið 1997.

„En þetta fór ekki á skrið hér á Íslandi fyrr en árið 2009,“ segir hún og bætir við að þrjár aðgerðir hafi verið gerðar hérlendis á árunum 1997 til 2003 en svo hafi engin aðgerð verðið gerð fyrr en árið 2009. 

Hefði aldrei trúað hversu lítið yrði um fordóma árið 2015

Anna segir að ef einhver hefði sagt henni fyrir tuttugu árum síðan að samfélagið á Íslandi yrði jafn jákvætt í garð transfólks og raun ber vitni árið 2015 hefði hún ekki trúað viðkomandi en hún segist afar sjaldan verða vör við fordóma í sínu daglega lífi.

„Það eru auðvitað dæmi um það, en þetta er sáralítið miðað við það sem var fyrir 20 árum síðan. Það var í kringum árið 2005 að ég fór að finna fyrir breyttu umhverfi hérna heima,“ segir hún en ástæðu minnkandi fordóma telur hún að megi rekja til aukins fjölda kvenna sem gengist hafa undir kynleiðréttingu.

Hún segir heilbrigðiskerfið taka allt öðru vísi á málum transfólks í dag en áður. „Við sem vorum snemma á ferðinni neyddumst til að fara úr landi og búa erlendis í mörg ár. Fólk var að fara í aðgerðir í Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Bandaríkjunum, Kanada og hugsanlega í Frakkalandi en ég er þó ekki með það staðfest. Bara þar sem það komst að,“ segir hún en á undanförnum fjórum árum hafa um 20 kynleiðréttingaraðgerðir verið framkvæmdar hérlendis.

Var formaður Transsamtakanna í Svíþjóð

Anna er önnur íslenska konan til þess að fara í kynleiðréttingaraðgerð eftir hennar bestu vitund, en sú fyrsta til þess að rjúfa þögnina og var hún um tíma formaður Transsamtakanna í Svíþjóð.

„Ég gagnrýndi fyrri stjórnir fyrir að loka sig of mikið af og þegar ég var formaður þá opnaði ég samtökin meira og jók fræðsluna út á við,“ segir hún en tvær sænskar konur, sem gengust undir kynleiðréttingaraðgerð í Svíþjóð, höfðu samband við Önnu og þökkuðu henni fyrir að stíga fram á sínum tíma.

„Þær höfðu samband við mig á seinni árum og þökkuðu mér fyrir að koma fram í dagsljósið á sinum tíma því þannig áttuðu þær sig á sínum erfiðleikum og fóru í aðgerð,“ segir hún og bætir við að það sé svo mikilvægt að fólk sjái að þetta sé ekkert einsdæmi því það sé fjöldinn sem vinnur á fordómum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert