Fjögur íslensk ungmenni eru staðsett í Nepal, þar sem öflugur jarðskjálfti reið yfir í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu eru þau þó að öllum líkindum á öðru svæði en því sem fór verst í skjálftanum, en farsímasamband liggur niðri svo ekki hefur tekist að hafa uppi á þeim.
Auk þeirra eru göngugarparnir Vilborg Arna Gissurardóttir og Ingólfur Ragnar Axelsson staðsett á Everest-fjalli, þar sem fjöldi snjóflóða féllu í kjölfar skjálftanna, en þau eru heil á húfi samkvæmt upplýsingum frá fjölskyldum þeirra.
Ekki er vitað um fleiri Íslendinga á svæðinu, en utanríkisráðuneytið er í stöðugu sambandi við sendiráðið í Indlandi, sem er jafnframt sendiráðið gagnvart Nepal.
Jarðskjálftinn var upp á 7,9 og olli miklum skemmdum og manntjóni í höfuðborginni Katmandú og í borginni Pokhara.
Uppfært 11:40:
Samkvæmt nýjustu upplýsingum eru ungmennin heil á húfi, en faðir eins drengsins í hópnum birti fréttirnar opinberlega á Facebook-síðu sinni rétt í þessu.
Good news! One of the girls from my sons group just got online. They are safe and in one piece in Pokhara :)
Posted by Hjörtur Smárason on Saturday, April 25, 2015
Frétt mbl.is: Mannskæður jarðskjálfti í Nepal
Frétt mbl.is: Vilborg og Ingólfur óhult