Barnið sem varð fyrir bifreið við verslun Krónunnar í gærkvöldi var flutt alvarlega slasað á Landspítalann þar sem það fór í skurðaðgerð. Samkvæmt upplýsingum frá lækni á sjúkrahúsinu er því nú haldið sofandi í öndunarvél. Líðan þess er sögð stöðug.
Slysið átti sér stað á áttunda tímanum í gærkvöldi við verslun Krónunnar í Vallakór í Kópavogi. Tildrög þess eru óljós en barnið varð á milli bifreiðar og húsveggjar.
Nánari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu en lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur málið til rannsóknar.