Maðurinn sem fluttur var með þyrlu á Landspítala í dag liggur alvarlega slasaður á gjörgæsludeild, að sögn vakthafandi læknis. Maðurinn var á fjórhjóli við Glaðheima á Fjallabaksleið nyrðri þegar slysið átti sér stað.
Björgunarsveitir frá Hellu og Hvolsvelli voru kallaðar út þegar tilkynning barst og þá var þyrla Landhelgisgæslunnar send á vettvang. Hún flutti manninn til Reyjavíkur og lenti um kl. 16.
Frétt mbl.is: Þyrla sækir slasaðan fjórhjólamann