Frumvarpið ekki verið dregið til baka

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra.
Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Félags- og húsnæðismálaráðherra hefur ekki fallið frá þeim áformum að leggja fram á yfirstandandi þingi frumvarp um stofnframlög vegna stuðnings við félagslegt húsnæði. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá velferðarráðuneytinu. Fréttir fjölmiðla, þess efnis að frumvarpið hafi verið dregið til baka, eigi þannig ekki við rök að styðjast.

„Í umfjöllun um húsnæðismál hef ég ítrekað vísað til þess að stjórnvöld verði að standa fyrir aðgerðum sem orðið geta til þess að fjölga valkostum á húsnæðismarkaði, meðal annars með því að styðja við uppbyggingu á virkum leigumarkaði.  Ég hef einnig sagt að slíkar aðgerðir gætu orðið til þess að greiða fyrir kjarasamningum og þau mál hafa verið til skoðunar að undanförnu. Ekki er hægt að segja fyrir hvort breytingar verði gerðar á frumvarpinu en það mun skýrast á næstunni. Reynslan kennir að framfarir í félagslega húsnæðiskerfinu verða ekki án aðkomu verkalýðshreyfingarinnar og fyrir baráttu hennar," er haft eftir Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert