„Verkfall dýralækna hjá Matvælastofnun hefur staðið frá 20. apríl síðastliðinn og valdið öllum búgreinum tjóni en öðru fremur svína- og alifuglarækt sem hafa orðið fyrir gríðarlegu tjóni. Fullyrða má að aðgerðir um 20 dýralækna hafi stórskaðað þessar búgreinar og geti eyðilagt þær ef fram heldur sem horfir. Mörg hundruð störf eru í húfi og afkoma fjölda fólks sem starfar hjá mörgum fyrirtækjum.“
Þetta segir í yfirlýsingu sem Félag kjúklingabænda, Félag svínabænda, Ísfugl ehf., Kaupfélag Skagfirðinga, Matfugl hf., Norðlenska Matborðið ehf., Reykjagarður hf., SAH Afurðir ehf., Síld og fiskur hf., Sláturfélag Suðurlands svf., Sláturhúsið Hellu hf., Sláturhús KVH ehf., Stjörnugrís hf. hafa sent á fjölmiðla vegna verkfalls dýralækna hjá Matvælastofnun. Þar segir ennfremur að reglur um dýraslátrun hafi „verið brotnar og undanþágunefnd ekki heimilað slátrun þrátt fyrir að fyrir lægi í úttektum að þrengsli væru of mikil og ekki væri fylgt reglum sem dýralæknar hafi sjálfir beitt sér fyrir að væru settar og eiga að framfylgja. Ástandið hefur bitnað á líðan dýra.“
Þá segir að takmörkuð slátrun hafi verið heimiluð gegn yfirlýsingum um að kjöt færi ekki á markað. Dýralæknar hefðu enga heimild til þess að setja skilyrði um slíkar yfirlýsingar og því væri um óheimila þvingun að ræða sem ekki stæðist lög. Sambærileg ólögmæt krafa hafi verið sett fram við kjúklingafyrirtækin svo þeim væri heimil slátrun vegna dýravelferðar.
„Varlega áætlað er tjón svína- og alifuglabúgreinanna 80-100 mkr. á viku vegna þess að eðlileg slátrun er ekki leyfð og vegna ólögmætra skilyrða dýralækna um að heilbrigðisskoðuð vara fari ekki á markað. Undirritaðir hagsmunaaðilar munu kanna grundvöll þess að sækja bætur fyrir það tjón sem þeim er valdið með þessum ólögmætu þvinguðu skilyrðum,“ segir ennfremur.
Jafnframt sé ljóst að skilyrði dýralækna um að heilbrigðisskoðuð vara fari ekki á markað sé „brot á samkeppnislögum og ólögmætt inngrip í framboð vara á markaði. Samkeppniseftirlitinu hefur verið sent erindi og þess óskað að gripið verði inn í þessar ólögmætu aðgerðir og viðeigandi viðurlögum verði beitt.“