Íbúar og starfsmenn á hjúkrunarheimilinu Mörk blása í dag til söfnunar til að styrkja neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn í Nepal. Eins og fram hefur komið hafa kröftugir jarðskjálftar valdið gríðarlegu tjóni þar í landi.
Klukkan 16:30 í dag standa þau fyrir bingó- og pizzaveislu og allur ágóði rennur til neyðarsöfnunar UNICEF. Fjöldi fyrirtækja hefur lagt málefninu lið með því að gefa vinninga fyrir bingóið.
Í fréttatilkynningu kemur fram að bingóspjaldið muni kosta 500 kr. og pizzuveislan 1000 kr. Viðburðurinn fer fram á 1. hæð í Mörk, Suðurlandsbraut 66, og í tilkynningunni segir að allir séu hjartanlega velkomnir.
„Þetta er frábært framtak hjá íbúum og starfsmönnum á hjúkrunarheimilinu Mörk og við erum þeim innilega þakklát,“ segir Sigríður Víðis Jónsdóttir, upplýsingafulltrúi UNICEF á Íslandi.
„Neyðin í Nepal er mjög mikil og börn afar berskjölduð. UNICEF hefur þegar veitt umfangsmikla neyðarhjálp á jarðskjálftasvæðinu: Dreift vatni, hreinlætisgögnum, lyfjum, tjöldum og teppum, veitt börnum sálrænan stuðning, bólusett þau gegn mislingum og sett upp tímabundna skóla. Allur stuðningur við þetta mikilvæga hjálparstarf skiptir gríðarlega miklu máli.“