Dælubíll vinnur nú að því að dæla fóðrinu úr fóðurbíl sem valt við Kröflu hjá Húsavík í morgun en hringvegurinn er lokaður þar. Samkvæmt lögreglunni á Húsavík þarf að tæma bílinn áður en hægt er að huga að því að færa hann til og hleypa umferð framhjá.
Vegurinn er eitthvað skemmdur og hann er afar skítugur. Lögreglan á Húsavík býst við því að hægt verði að opna veginn eftir þrjár klukkustundir.