Sama dag og SPRON veitti hlutafélaginu Exista tveggja milljarða króna peningamarkaðslán, þann 30. september 2008, fékk SPRON lán að sömu fjárhæð frá tryggingafélaginu VÍS, dótturfélagi Exista. Sérstakur saksóknari telur að áhættunni af láninu til Exista hafi verið velt af VÍS og yfir á sparisjóðinn, sem hafi þannig setið uppi með fullt tjón vegna lánsins.
Í ákæru sinni talar sérstakur saksóknari um „snúning“ í þessu samhengi, en málið hefur oft og mörgum sinnum borið á góma við aðalmeðferð í SPRON-málinu svonefnda í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag og í gær.
Fyrrum stjórnarmenn SPRON, sem eru ákærðir í málinu fyrir umboðssvik, segjast ekki kannast við umrætt tveggja milljarða króna lán frá VÍS. Þeir hafi raunar aldrei verið upplýstir um að peningamarkaðslánið til Exista hafi verið fjármagnað með þessu innláni.
Fyrrum starfsmenn SPRON og Exista, sem störfuðu í fjárstýringu, virðast þó hafa verið meðvitaðir um innlánið frá VÍS, þó svo að þeir hafi fyrir dómi í dag borið við minnisleysi um atvik málsins. Saksóknari spilaði nokkur símtöl og birti jafnframt tölvupósta þar sem starfsmennirnir ræða sín á milli um þennan „snúning“ - eða „lúppu“ eins og einn starfsmaðurinn kaus að kalla það.
Þannig spilaði saksóknari til að mynda símtal á milli Snorra Petersen, þáverandi starfsmanns í fjárstýringu SPRON, og Valgeirs M. Baldurssonar, sem var þá framkvæmdastjóri fjármálasviðs SPRON. Í símtalinu vísaði Valgeir til þess að VÍS ætlaði að leggja innlán í SPRON, að fjárhæð tveir milljarðar króna, og í sömu andrá ætlaði Exista að fá lánað frá SPRON fyrir sömu fjárhæð. Snorri sagðist fyrir dómi í dag ekki muna sérstaklega eftir símtalinu eða þessum tilteknu lánveitingum. SPRON hefði veitt fjölmörg peningamarkaðslán á árunum fyrir hrun og verið virkur á þessum markaði.
Stefán Þór Sigtryggsson, sem starfaði einnig í fjárstýringu SPRON, sagðist reka minni til þess að innlánið frá VÍS hefði borist inn á tékkareikning sparisjóðsins. Hann kvaðst þó ekki vita hvernig það hefði verið tilkomið.
Aðdragandi lánveitingar þeirrar sem sérstakur saksóknari hefur ákært fyrir í málinu var sá að 18. september 2008 veitti VÍS fjögurra milljarða króna peningamarkaðslán til Exista. Það var framlengt til 22. september, aftur til 29. september og að lokum til 30. september en þá greiddi Exista lánið til baka, að hálfu með láninu frá SPRON og fyrir það er ákært.
Rétt áður en SPRON lánaði Exista tvo milljarða fékk sparisjóðurinn peningamarkaðslán frá VÍS upp á sömu upphæð. Þeir fjármunir sem VÍS lánaði SPRON voru því notaðir til að fjármagna lánið til Exista. „Var staðan eftir þennan snúning sú að áhætta VÍS gagnvart Existu minnkaði um tvo milljarða, en í staðinn hafði SPRON veitt Existu tryggingalaust lán að sömu fjárhæð,” segir í ákærunni.
Telur saksóknari því að áhættunni af tveggja milljarða króna láni til Existu hafi þannig verið velt af VÍS og yfir á SPRON, sem síðar sat uppi með fullt tjón vegna lánsins.
Þau Guðmundur Örn Hauksson, fyrrverandi forstjóri SPRON, og stjórnarmennirnir Ari Bergmann Einarsson, Jóhann Ásgeir Baldurs, Margrét Guðmundsdóttir og Rannveig Rist eru ákærð í málinu fyrirumboðssvik. Þau eru sögð hafa misnotað aðstöðu sína hjá sparisjóðnum og stefnt fé hans í verulega hættu.