Grófu í háspennustreng

Rafmagn fór af Melasveitarlínu kl. 12:57 í dag þegar grafið var í háspennustreng við Skipanes. Rafmagn komst aftur á línuhlutann frá Brennimel að Skipanesi kl. 13:50.

Straumleysi frá Skipanesi að Höfn verður eitthvað lengur vegna viðgerðar á háspennustrengnum, samkvæmt upplýsingum frá Rarik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert