Kveiktu annan eld klukkutíma fyrr

Eldur sem kom upp á geymslusvæði verksmiðjunnar Set á Selfossi á sunnudaginn hlaust af fikti ungra drengja með eldfæri. Þetta kemur fram í pistli Péturs Péturssonar, varaslökkviliðsstjóra Brunavarna Árnessýslu sem birtist á vef þeirra í kvöld. Þar kemur jafnframt fram að brugðist hafi verið við öðru útkalli um það bil klukkutíma fyrr á svipuðum slóðum. Þar höfðu sömu aðilar kveikt eld en sá eldur var auðslökktur af vakthafandi varðstjóra liðsins.

Eins og fram hefur komið kviknaði gríðarlegur eldur í rörum Set þar sem auðbrennanleg plastefni brunnu með tilheyrandi eiturlosun út í andrúmsloftið.

Í pistlinum kemur fram að grípa þurfti til rýmingar fólks úr nálægum íbúðarhúsum vegna hættu af reykeitrun. Fólk frá Árnesingadeild RKÍ sá til þess að fjöldahjálparstöð var opnuð í Vallarskóla þar sem fólk gat leitað skjóls. Björgunarsveitir frá Árborg, Hveragerði, Eyrarbakka og Þorlákshöfn sáu um rýmingar undir stjórn Lögreglu og Svæðisstjórnar á svæði 3. Um 45 björgunarsveitarmenn tóku þátt í aðgerðunum.

Slökkviliðseiningar frá starfstöðvum BÁ, á Selfossi, Hveragerði, Þorlákshöfn og Árnesi  voru kallaðar til vegna eldsins. „Einnig var kallað eftir aðstoð frá Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins en þeirra aðstoð var afturkölluð skömmu síðar þegar ljóst var slökkviliðmenn BÁ höfðu náð tökum á eldinum. Um 50 slökkviliðsmenn frá BÁ komu að vinnu við þennan vettvang,“ segir í pistlinum.

Pétur lýsir því hvernig slökkviliðsmenn einbeittu sér að því í upphafi að kæla nærliggjandi byggingar og plaströr sem ekki voru nú þegar að brenna með vatni. „Ljóst var í upphafði að þessi heldur yrði ekki auðunnin nema með notkunar froðu sem slökkvimiðils. Þegar að nægar froðubyrgðir voru komnar á vettvang var ráðist að eldinum og gekk slökkvistarf nokkuð hratt og örugglega þegar sú vinna fór af stað.“

Pétur kallar það mikið afrek að slökkviliðsmönnum skyldi takast að verja húseignina við gagnheið 5 en mikinn reyk og geislunarvarma lagði að henni. „Það er óhætt að segja að þar var miljónatjóni forðað,“ skrifar Pétur. Hann leggur þó áherslu á að tjónið í þessum bruna hafi verið mikið enda eyðilögðust vörur frá Set fyrir milljónir króna. Einnig er ljóst að Brunavarnir Árnessýslu bera mikinn kostnað af þessu útkalli.

„Mikið magn froðu var notað við slökkvistarfið og ljóst er að kostnaður við froðunotkunina einn og sér hleypur á hundruðum þúsunda. Skemmdir á slöngum og öðrum búnaði BÁ var nokkur auk þess sem mannalaun við verkefni af þessari stærðargráðu eru umtalsverð,“ skrifar Pétur.

Mikilvægast er þó að ekki fór ver og að engin slys urðu á fólki. „Það er svo sannarlega ekki sjálfgefið í verkefni af þessari stærðargráðu,“ skrifar Pétur.

„Samstarf milli allra aðila voru til fyrirmyndar í þessu verkefni. Íbúar Árnessýslu mega vera stoltir af þeirri björgunargetu sem í sýslunni býr. Saman getum við svo sannarlega unnið stórvirki.“

Hér má sjá pistilinn í heild sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert