Verkfalli félagsmanna Rafiðnaðarsambands Íslands, Félags vélstjóra- og málmtæknimanna og Matvís, sem hefjast átti á miðnætti á morgun hefur verið frestað. Þetta staðfestir Guðmundur Ragnarsson, formaður VM, í samtali við mbl.is.
Verkfallinu hefur verið frestað til 22. júní, rétt eins og verkfallsaðgerðum aðildarfélaga Samiðnar, Grafíu/FBM stéttarfélags í prent- og miðlunargreinum, og Félags hársnyrtisveina. Þeim var frestað um helgina.
„Við höfum náð að þoka okkar málum aðeins áleiðis. Við töldum að það væri grundvöllur til að fresta þessu en nú tekur við áframhaldandi vinna. Tíminn mun leiða í ljós hver niðurstaðan verður með framhaldið,“ segir Guðmundur en ekki hefur verið boðað til nýs fundar í deilunni. "En það verður gert mjög fljótlega, líklega í vikunni."
Guðmundur segir að það sé erfitt að segja til um hvort það náist að semja áður en verkfallið hefst eftir tvær vikur.
„Það er erfitt að segja til um það að þessu stigi. Þó að það hafi verið talið skynsamlegt að fresta þessu verkfalli þá á eftir að sjá hvaða niðurstöðu okkur tekst að ná með önnur atriði.“