Drengirnir heimsóttu slökkvistöðina

Ljóst er að um óviljaverk var að ræða.
Ljóst er að um óviljaverk var að ræða. Ljósmynd/Sigmundur Sigurgeirsson

Tveimur ungum mönnum sem urðu valdir að brunanum á geymslusvæði SET sunnudaginn 7. júní síðastliðinn var boðið í heimsókn á slökkvistöð Brunavarna Árnessýslu (BÁ) á Selfossi í dag. 

Á vefsíðu BÁ segir að með öllu sé ljóst að þarna var um óviljaverk að ræða og vildu stjórnendur BÁ ásamt foreldrum þeirra hjálpa þeim að takast á við það áfall er þeir urðu fyrir við þennan atburð.

Starfsmenn BÁ fóru með þeim yfir þá hættu sem óvarleg meðferð með eld getur haft í för með sér auk þess sem þeir ræddu um þá hættu sem slökkviliðsmenn eru í við störf sín enda er slökkvistarf talið hættulegasta starf sem hægt er að vinna á friðartímum, segir í tilkynningu. 

„Strákarnir fengu síðan að kynnast tækjum slökkviliðsins, hvernig dæla á slökkvibíl virkar, hvernig reykköfunartæki slökkviliðsmanna eru notuð, hvernig á að nota handslökkvitæki auk þess sem þeir fegnu að sjá Selfoss úr lofti í körfubíl slökkviliðsins.

Virkilega gaman var að fá þessa ungu flottu menn í heimsókn til okkar á slökkvistöðina, þeir eru fullir iðrunar en munu nú vonandi horfa fram á veginn því ekki gengur að dvelja í baksýnisspeglinum alla tíð,“ segir á vefsíðu BÁ. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert