Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti við Landspítalann í Fossvogi rétt í þessu með tvö börn sem hlutu brunasár á fótum á Geysissvæðinu.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er ekki talið að meiðsli þeirra séu alvarleg en talið er að þau hafi hlotið fyrsta stig brunasár.
Lögreglan á Suðurlandi var kölluð út vegna málsins.
Fréttin verður uppfærð þegar frekari upplýsingar berast.