Málsvarnarkostnaður í stóra markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings nemur tæplega 263 milljónum króna, en þar af er hlutur ákærðu í málinu 165,6 milljónir, en ríkisins 97,2 milljónir. Eftir því sem mbl.is kemst næst er þetta lang hæsta upphæð sem dæmd hefur verið í málsvarnarkostnað vegna eins máls hér á landi og er t.d. rúmlega þrefalt hærri á föstu verðlagi en í Baugsmálinu.
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings þarf að greiða hæstu upphæðina, en af tæplega 48 milljóna kostnaði mun hann þurfa að greiða tæplega 32 milljónir. Ingólfur Helgason, forstjóri bankans á Íslandi mun þurfa að greiða um 27,5 milljónir af 58,5 milljóna kostnaði. Inn í heildarkostnaði lögmanna hans er rúmlega 17 milljóna kostnaður frá fyrri lögmanni Ingólfs. Í miðju máli var skipun hans afturkölluð þar sem ekki var útilokað að verjandi hans yrði kvaddur til sem vitni. Allur sá kostnaður féll á ríkið.
Í tilfelli Magnúsar Guðmundssonar, fyrrverandi forstjóra Kaupþings í Lúxemborg og Bjarkar Þórarinsdóttur, fyrrverandi lánafulltrúa í lánanefnd bankans, féll allur málsvarnarkostnaður á ríkið, en Björk var sýknuð og í tilfelli Magnúsar var ákæruliðum vísað frá dómi eða hann sýknaður að öðru leyti.
Samkvæmt því sem mbl.is kemst næst eru aðeins nokkur önnur mál þar sem málsvarnarkostnaður hefur verið í svipuðum tölum, en það sem gerir þetta mál stærra í sniðum er að ákærðu í málinu voru fleiri en í öðrum málum.
Þannig var t.d. heildar málsvarnarkostnaður í stóra markaðsmisnotkunarmáli Landsbankans í heild 118 milljónir, en af þeim féllu 66,8 milljónir á ríkissjóð. Málið var tekið fyrir í fyrra í héraðsdómi, en í júní sama ár var dæmt í hinu svokallaða Ímon máli. Þar voru starfsmenn Landsbankans einnig ákærðir, en heildar málsvarnarlaun verjenda í málinu voru rúmlega 31,2 milljónir. Í þessum tveimur málum var því heildarkostnaðurinn um 150 milljónir
Í Baugsmálinu var heildar málsvarnarkostnaður ákærðu 60,3 milljónir, en á verðlagi dagsins í dag er það um 84,2 milljónir.