Búast má við snörpum vindhviðum, 25-30 m/s, undir Eyjafjöllum, í Mýrdal og Öræfum síðdegis í dag.
Í viðvörun Veðurstofu Íslands segir að það gangi í norðaustanhvassviðri suðaustanlands í dag og víða verði öflugir vindstrengir við fjöll, 25-30 m/s, einkum undir Eyjafjöllum, í Mýrdal og Öræfum. Dregur smám saman úr vindi seint í kvöld og nótt.