„Veður verður fínt í raun og veru um allt land,“ segir Elín Björk Jónasdóttir, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við mbl.is. „Svolítið skýjað í dag en léttir til í innsveitum, sérstaklega á Suður- og Vesturlandi. Það léttir víða til á morgun en það er alltaf von á einhverri smá þokusúld við norður og austurströndina þar sem sjórinn er kaldur.“
Margir leggja land undir fót um helgina og fjölmargir viðburðir haldnir. Elín vill ekki benda á einhvern ákveðinn stað þar sem veður verður best. „Það er hægt að vera alls staðar. Veðrið ætti að vera mjög fínt um allt land á morgun og það er að megninu til jafn gott alls staðar í dag líka. Við erum í hægum vindi og meinlausu veðri.“
Helgarveðrið ætti því almennt að vera ágætt og vonandi lætur sólin sjá sig. „Gæti verið víða á morgun mjög bjart og fínt, sérstaklega inn til landsins og hitinn er á bilinu 10-18 stig. Getur örugglega farið í 20 stig þar sem er gott skjól og sólin nær að skína.“
Engum ætti að leiðast um helgina