Imon-málið svonefnda verður tekið fyrir í Hæstarétti 21. september næstkomandi. Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í júní á síðasta ári þau Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans, og Sigríði Elínu Sigfúsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs bankans.
Steinþór Gunnarsson, fyrrverandi forstöðumaður verðbréfamiðlunar, var hins vegar dæmdur í níu mánaða fangelsi, sex voru skilorðsbundnir.
Ríkissaksóknari ákvað í kjölfarið að áfrýja dómnum til Hæstaréttar.
Imon-málið sem svo er kallað tengist sölu Landsbankans á eigin bréfum til tveggja eignarhaldsfélaga í lok september og byrjun október árið 2008. Félögin tvö voru Imon ehf. og Azalea Resources Ltd.
Þau Sigurjón og Sigríður Elín voru ákærð fyrir umboðssvik og markaðsmisnotkun. Saksóknari krafðist fimm ára fangelsis yfir Sigurjóni og fjögurra ára fangelsis yfir Sigríði Elínu og Steinþóri.
Héraðsdómur sýknaði Sigurjón og Sigríði Elínu af öllum kröfum en sakfelldi Steinþór fyrir að tilkynna viðskipti til Kauphallarinnar sem ekki var búið að fjármagna. „Í starfi ákærða fólst að koma á viðskiptum með hlutabréf og tilkynna þau til Kauphallarinnar. Gat honum ekki dulist að upplýsingar um hvernig að viðskiptum væri staðið gátu haft áhrif á mat aðila verðbréfamarkaðarins á verði hlutabréfa. Bar ákærða að haga starfi sínu á þann veg að misvísandi eða villandi upplýsingar um verðmæti hlutabréfa bærust ekki út á markaðinn,“ sagði í dómi héraðdóms.
Einnig var skilað séráliti í því máli og vildi einn héraðsdómara sakfella Sigurjón og Steinþór fyrir markaðsmisnotkun í öðrum ákærulið.