Smitaðar af HIV-veirunni

Sjúk­dóm­ur­inn sem karl­maður af er­lend­um upp­runa er grunaður um að hafa smitað ung­ar kon­ur af er HIV. Þetta staðfest­ir Har­ald­ur Briem sótt­varna­lækn­ir í sam­tali við mbl.is. Maður­inn er í frétt á vef RÚV sagður níg­er­ísk­ur hæl­is­leit­andi sem kom hingað til lands í ág­úst.

„Þetta er HIV-smit sem veld­ur al­næmi. Það er al­var­leg­ur sjúk­dóm­ur. Helstu smit­leiðirn­ar eru kyn­mök og skipti á spraut­um og nál­um. Veir­an get­ur þannig borist manna á milli,“ seg­ir Har­ald­ur og bend­ir á að veir­an kann að vera ein­kenna­laus fram­an af.

„Þetta er veira sem veld­ur kannski eng­um ein­kenn­um fram­an af en smám sam­an eyðilegg­ur hún ónæmis­kerfið og get­ur leitt til al­var­legra sjúk­dóma og dauða ef ekk­ert er gert. Nú er nátt­úru­lega til meðferð við þessu en hún gagn­ast ekki nema að fólk viti af sjúk­dómn­um.“

Ekki hef­ur verið gefið upp með hvaða hætti kon­urn­ar hafi smit­ast.

Har­ald­ur seg­ir að nú sé unnið að því að finna hversu um­fangs­mikið málið er, en það er gert með svo­kallaðri smitrakn­ingu. Seg­ir hann slíka vinnu gerða dag­lega hjá embætt­inu. Aðspurður hvað málið tengd­ist mörg­um í dag vildi Har­ald­ur ekk­ert gefa upp um það.

Málið kom upp fyr­ir skömmu síðan þegar fyrsta grein­ing­in á sér stað. Í kjöl­farið var haf­in smitrakn­ing sem hef­ur leitt málið að þeim stað sem það er í dag. Har­ald­ur seg­ir að erfitt sé að greina hvenær smitið sjálft hafi átt sér stað, en það gæti þó verið mun lengri tími.

Eins og fyrr seg­ir smit­ast HIV helst í gegn­um kyn­mök eða með skipt­um á spraut­um og nál­um. Aðspurður hvort mun­ur væri á smiti milli kynj­anna seg­ir Har­ald­ur að jafn­an sé talið lík­legra að karl­menn smiti, en það skipti ekki máli í stóra sam­heng­inu og smit geti hæg­lega farið í báðar átt­ir.

Sjá frétt mbl.is: Er­lend­ur karl­maður grunaður um að smita kon­ur af al­var­leg­um sjúk­dómi

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert