„Mér hefur verið nauðgað“

Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir.
Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir.

„Mér hefur verið nauðgað. Ég þekki ekki þann sem nauðgaði mér. Hann bjó í húsinu við hliðina á vinkonum mínum þegar ég var barn.“

Þetta skrifar Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknar- og flugvallarvina, á Facebooksíðu sína í dag.

„Ég er þakklát þeim sem hafa stigið fram og viðurkennt að hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi. Það hefur hjálpað mörgum. Það hefur hjálpað mér. Mér hefur verið nauðgað og ég hef átt við áfallastreituröskun að stríða. Ég þekki ekki þann sem nauðgaði mér. Hann bjó í húsinu við hliðina á vinkonum mínum þegar ég var barn,“ skrifar Guðfinna.

Hún skrifar að hún sé ekki mikið fyrir að opna sig en ætli núna að „stíga langt út fyrir þægindarammann og þakka því fólki sem hefur hjálpað mér og öðrum með hugrekki sínu og aflétt þeirri þöggun sem hefur hvílt yfir kynferðisofbeldi og afleiðingum þess.“

Hún segir erfitt að stíga fram og segja frá einhverju sem hún hafi falið jafnlengi og raun ber vitni, en hún segir einnig erfitt að halda svona löguðu leyndu. „Ég viðurkenni það fúslega að það að viðurkenna að hafa verið nauðgað og setja þessa færslu hér er eitt það erfiðasta sem ég hef gert en samt ekki jafn erfitt og að hafa lifað með afleiðingum þess í áratugi.“

Hún skrifar að áfallastreituröskun hafi mikil áhrif á líf þeirra sem við hana glíma, og því sé nauðsynlegt að opna umræðu um hana.

„Kvíðinn, reiðin, óttinn, skömmin, martraðirnar, endurupplifunin, þráhyggjan, feluleikurinn við að brynja sig svo enginn viti hvað maður hefur gengið í gegnum, dagarnir sem maður hefur þurft að tala sjálfan sig í gegnum daginn til að komast af, félagsfælnin, vonleysið, vörnin, myrkfælnin og allt hitt sem fylgir er erfitt að lifa með og getur bitnað á mörgum enda fylgir slíkri vanlíðan oft hegðun sem enginn skilur en er í raun öskur á hjálp. Því er mikilvægt að opna umræðuna um afleiðingar kynferðisofbeldis og aðstoða þá sem hafa lent í kynferðisofbeldi,“ skrifar Guðfinna Jóhanna.

Ég er ekki mikið fyrir að opna mig en ég ætla núna að stíga langt út fyrir þægindarammann og þakka því fólki sem hefur...

Posted by Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir on Friday, July 24, 2015
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert