Lögregla rannsakar kynferðisbrot

Lögregla hefur ekki gefið upp hvenær kynferðisbrotið átti sér stað.
Lögregla hefur ekki gefið upp hvenær kynferðisbrotið átti sér stað. mbl.is/Eggert

Kynferðisbrotamál er til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Akureyri. „Ég get staðfest að svona mál er til rannsóknar,“ segir Ragnar Kristjánsson, varðstjóri hjá lögreglunni á Akureyri.

Ragnar vildi ekki tjá sig um rannsókn málsins að öðru leyti og gat því ekki svarað því hvenær umrætt kynferðisbrotamál kom upp. Ekki hefur verið lögð fram kæra til almennrar deildar lögreglunnar á Akureyri vegna málsins, en Ragnar segir að mögulega sé búið að leggja fram kæru beint til rannsóknardeildar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert