Mikið sandrok hefur verið í dag á Haukadalsheiði en lögreglan á Suðurlandi og veðurfræðingur Vegagerðarinnar hafa varað við hvassveðri. Samkvæmt veðurfræðingi Vegagerðarinnar verður norðaustanvindröst yfir landinu til morguns og liggur hún í strengjum. Á vef Vegagerðarinnar kemur fram að staðbundnir hnútar verða af Vatnajökli frá Lómagnúpi og austur með ströndinni og að hægt sé að gera ráð fyrir hviðum allt að 30-35 metrum á sekúndu. Varað er við sandstrókum sem geta myndast á Skeiðarársandi og að það verði hvasst og með sandfoki suður yfir Sprengisandi og niður á Rangárvelli og norður af Landmannalaugum. Einnig er nokkuð hvass strengur yfir Vestfjörðum og Breiðafirði en þar er meira jafnvindi samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.
Lögreglan á Suðurlandi varaði jafnframt vegfarendur sem eru að aka eftir Suðurlandsvegi fyrir austan Kirkjubæjarklaustur að mjög hvasst er orðið á þessum slóðum og töluvert sandfok á Skeiðarársandi.
Á meðfylgjandi myndum má sjá sandrokið á Haukadalsheiði í dag.
Hér má sjá veðurvef mbl.is.