Kemst á deit vegna kleinuhringjanna

Sindri Blær Gunnarsson beið í röð á Laugaveginum í tólf klukkustundir fyrir opnun kleinuhringjastaðarins Dunkin' Donuts í gærmorgun og fær fyrir vikið sex kleinuhringi á viku í heilt ár. Sindri beið í röðinni ásamt vini sínum og segir dvölina ekki hafa verið ýkja erfiða, þó nokkuð hafi kólnað er leið á nóttina.

Hann segir kleinuhringjakortið koma sér vel í ástarmálunum og flaggar því óspart á stefnumótaforritinu Tinder.

Fréttir mbl.is:

Kleinuhringjaæði á Laugaveginum

Bitist um kleinuhringina

Biðröð fyrir utan Dunkin' Donuts

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert