Talið að eitrað hafi verið fyrir dýr

Frá Hveragerði.
Frá Hveragerði. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Grunur leikur á um að einhver hafi eitrað fyrir dýr í Hveragerði en nokkrir kettir hafa fundist dauðir í bænum um helgina samkvæmt heimildum mbl.is. Fyrir utan íbúðarhús í bænum fannst fiskur sem talið er að hafi legið í frostlegi.

Lögreglan á Selfossi hefur staðfest í samtali við mbl.is að hafa fengið tilkynningar inn á borð til sín um málið og hafa lögreglumenn verið sendir í dag til Hveragerðis til þess að ræða við þá sem veitt geta upplýsingar um málið. Málið er að öðru leyti í rannsókn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert