Vill ekki taka þátt í formannsslag

Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar
Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar mbl.is/Kristinn

Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar, hefur ekki áhuga á því að taka þátt í formannsslag. Hann leggur til að embætti innan flokksins róteri á milli fólks. „Í þessu felst að ég sjálfur yrði ekki lengur formaður, nema þegar röðin kæmi að mér að axla þá ábyrgð til jafns við aðra.“

Þetta skrifar Guðmundur í færslu á Facebooksíðu sína, en þar veltir hann stöðu flokksins fyrir sér.

„Ég hef engan áhuga á að taka þátt í formannsslag. Átök um embætti og völd innan stjórnmálaflokka eru töluverð meinsemd, að mínu viti. Heilu stjórnmálahreyfingarnar, gæddar fögrum hugsjónum, standa lamaðar í kjölfar slíkra átaka. Fókusinn á brýn úrlausnarefni í þjóðfélaginu, á verkefnin sem ráðast þarf í, hverfur í skuggann,“ skrifar Guðmundur.

Hann bendir á, að í lögum Bjartrar framtíðar sé öll áhersla lögð á öfugan píramída og þátttöku í stjórnmálum á grunni hugsjóna um þjónandi forystu. Að taka þátt í stjórnmálum á vettvangi Bjartrar framtíðar sé verkefni sem menn fari saman í.

„Sú tillaga, sprottin úr góðri umræðu innan flokksins, sem ég vil tala fyrir og afla brautargengis á Ársfundi BF, af hug og hjarta – vegna þess að ég hef trú á því að þetta sé rétta leiðin og í bestu samræmi við gildi Bjartrar framtíðar -- er þessi:

Látum embættin innan flokksins, formennsku, stjórnarformennsku og þingflokksformennsku rótera á milli fólks. Tökum jafnari ábyrgð. Setjum fókusinn á málefnin, gildin, stefnuna. Hugsjónirnar. Berjumst fyrir þeim, en minna við hvort annað.

Í þessu felst að ég sjálfur yrði ekki lengur formaður, nema þegar röðin kæmi að mér að axla þá ábyrgð til jafns við aðra. Það er hugur í mér. Ég vil ganga í öll þau störf sem flokksmenn kunna að fela mér og gera mitt allra besta til að styðja aðra, sem aðhyllast okkar hugsjónir, í sömu verkum. Það á enginn að starfa í Bjartri framtíð með því skilyrði að hann sé formaður, eins og það sé aðalatriðið. Það gildir um mig, og aðra,“ skrifar Guðmundur.

Formaðurinn meti stöðu sína

Tilbúin að taka við Bjartri framtíð

Glímir við forystukreppu

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert