Gert er ráð fyrir því að um 8000 manns leggi leið sína í Laugardalshöll í kvöld en þar fara fram stórtónleikar bandarísku rokksveitarinnar Kings of Leon.
Hljómsveitina, sem var stofnuð árið 1999, skipa bræðurnir Caleb, Nathan og Jared Followill og frændi þeirra Matthew Followill, allir frá Nashville Tennessee. Hljómsveitin hefur undanfarið verið aðalnúmerið á stærstu tónleikahátíðum heims, meðal annars á Hróarskeldu, Coachella, Glastonbury, Rock Werchter og Lollapalooza.
Árið 2010 vann hljómsveitin til Grammy verðlauna í nokkrum flokkum, þar á meðal flokkunum Plata ársins og Besta rokklagið. Þess má geta að enn eru til miðar á tónleikana á tix.is
mbl.is kíkti í Laugardalshöll í dag en þar var undirbúningur í fullum gangi.