Fannst meðvitundarlaus í miðbænum

Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Lögregla var tvívegis kölluð í miðbæinn í nótt vegna meintra líkamsárása. Í fyrra skiptið kl. 03:25 var tilkynnt um meðvitundarlausann mann á skemmtistað í miðbænum. Talið var að hann hafi verið sleginn en ekki er vitað með geranda. Kl. 03:59 óskaði karlmaður eftir aðstoð lögreglu og sagðist hafa verið sleginn af dyraverði á skemmtistað í miðbænum. Lögreglustöð 5 hefur bæði málin til rannsóknar.

Um klukkutíma síðar var ökumaður stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Við leit á ökumanni og farþega í bifreiðinni fundust ætluð fíkniefni í söluumbúðum. Báðir aðilar hafa verið vistaðir í fangageymslu vegna frekari rannsóknar á málinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka