Ungur maður í mjög annarlegu ástandi var handtekinn við skemmtistað í Hafnarstræti rúmlega hálf eitt í nótt. Maðurinn er grunaður um líkamsárás og fór ekki að fyrirmælum lögreglu á vettvangi. Hann er vistaður í fangageymslu þar til hægt verður að ræða við hann.
Ölvaður maður var handtekinn í heimahúsi í austurborginni um átta leytið í gærkvöldi. Hann gistir fangaklefa þar sem hann er látinn sofa úr sér vímuna.
Lögreglan handtók ungan mann í Kópavogi um níu í gærkvöldi en hann er grunaður um innbrot í bifreiðar. Maðurinn vistaður í fangageymslu fyrir rannsókn máls.
Tveir voru teknir í nótt fyrir akstur bifreiða undir áhrifum vímuefna. Annar fíkniefna en hinn áfengis.