Rafmagnsleysið í Vestmannaeyjum í kvöld stafar af bilun sem varð í spenni í tengivirkinu Rimakoti rétt upp úr kl. 16 í dag. Fyrir vikið var ekki hægt að flytja rafmagn til Eyja samkvæmt fréttatilkynningu frá Landsneti. Auk Vestmannaeyinga urðu íbúar undir Eyjafjöllum og í Mýrdal fyrir rafmagnsleysi vegna bilunarinnar.
„Strax var hafist handa við að greina bilunina til að koma rafmagni aftur á. Prófað var að setja spennu á spenninn um klukkan 19:30 eftir skoðun og greiningu. Á svipuðum tíma komu upp erfiðleikar við framleiðslu varafls og varð þá víðtækt rafmagnsleysi í Vestmannaeyjum. Prófað var að setja spennu á spenninn um klukkan hálf átta og leysti hann aftur út korter í átta. Vandamál voru með afhendingu rafmagns frá varaaflstöð til um það bil kl. 21,“ segir ennfremur.
Vinnuflokkar Landsnets eru á staðnum og nú rétt fyrir klukkan tíu var forgangsorka komin á í Vestmannaeyjum.